Samstaða flokkur lýðræðis- og velferðar vill vernda náttúru
landsins gegn óásættanlegum, óafturkræfum náttúruspjöllum og berjast fyrir
vistvænni nýtingu auðlinda og umhverfisvænni framleiðslu- og
þjónustustarfsemi.
Samstaða flokkur lýðræðis- og velferðar er fjöldahreyfing
almennings sem tekur þátt í þróun samfélagsins með virkum lýðræðislegum
hætti og upplýstri rökræðu. Frumkvæði, áhugi og þekking einstaklinganna er
virkjuð til að skapa betri lausnir.
Samstaða flokkur lýðræðis- og velferðar sprettur úr íslensku
umhverfi og leggur áherslu á þann lærdóm sem draga má af stjórnmálasögu
landsins og sérkennum íslensks efnahagslífs og samfélags.
Samstaða flokkur lýðræðis- og velferðar telur rétt allra til
atvinnu vera mannréttindi. Hámarka þarf verðmætasköpun með sjálfbærri
nýtingu auðlinda þjóðarinnar, nýsköpun og tækniþróun innanlands.
Stefnuskráin
Grundvallarstefnuskrá SAMSTÖÐU liggur fyrir, en hún skýrir megin áherslur
flokksins í hinum ýmsu málaflokkum. →
Stjórnir
SAMSTAÐA fær ekki fjárframlag úr ríkissjóði eins og flestir aðrir flokkar og
þarf að reiða sig á frjáls framlög.→
Styrkir
Kynntu þér hverjir sitja í framkvæmdaráði, stjórn flokksins, stjórnum
aðildarfélaga hans og ungliðahreyfingarinnar →