Afhjúpandi þögn um umsókn Lilju

24 Aug 2014

Rakel Sigurgeirsdóttir birti eftirfarandi á bloggi sínu 19. ágúst sl: Það er óhætt að segja að hún hafi komið á óvart tilkynning fjármála- og efnahagsráðherra um það hver verður skipaður í embætti seðlabankastjóra. Það er þó líklegra að einhverjir hafi verið búnir að reikna þessa niðurstöðu út úr biðtímanum. Yfirlýsing Más Guðmundssonar, sem heldur embættinu, í kjölfar tilkynningar Bjarna Benediktssonar hefur þó væntanlega komið flestum í opna skjöldu. Þegar rýnt er í undangengið umsóknar- og skipunarferli er reyndar fleira sem hlýtur að koma mörgum á óvart.
Lesa Meira

Endurnýjaður stuðningur við Lilju

17 Aug 2014

Þeir sem hafa fylgst með síðunni: Lilju Mósesdóttur sem næsta seðlabankastjóra hafa væntanlega tekið eftir því hvernig síðan hefur vaxið af bæði innleggjum og stuðningi. Það er þar af leiðandi eðlilegt að velta því fyrir sér hvað verður um hana nú þegar það hefur verið tilkynnt að Már Guðmundsson verður skipaður áfram í embættið. Áður hefur komið fram að þeir sem standa að stuðningssíðunni eru fimm manna hópur sem síðar kom í ljós að eiga það sameiginlegt að vera félagsmenn í SAMSTÖÐU (sjá hér).
Lesa Meira

Þakkir frá Lilju

16 Aug 2014

Nú í morgun birti Lilja Mósesdóttir þakkir til stuðningsmanna og stofnanda síðunnar: Lilju Mósesdóttur sem næsta seðlabankastjóra. Þakkirnar setti hún fram í stöðuuppfærslu á Fésbókar í beinu framhaldi af því að nú hefur það verið gert opinbert að Már Guðmundsson verður endurskipaður í stöðu seðlabankastjóra n.k. miðvikudag. Aðstandendur síðunnar brugðust við þessum fréttum í gærkvöldi þar sem þeir leggja það til að síðunni verði haldið úti áfram undir sama nafni en áskoruninni verði breytt.
Lesa Meira

Vaxandi samstaða með Lilju

10 Aug 2014

Einn aðstandanda síðunnar: Lilju Mósesdóttur sem næsta seðlabankastjóra setti sig í samband við undirritaða til að koma á framfæri göngum um kynjasamsetningu og aldurs- og búsetudreifingu velunnara stuðningssíðunnar. Auk þess sem viðkomandi þótti tilefni til að undirbúa fyrrum tengsla- og kynningarfulltrúa SAMSTÖÐU til að koma á framfæri mögulegum viðbrögðum við innihaldi tilkynningar fjármála- og efnahagsráðherra um það hvern umsækjendanna hann hefur í hyggju að skipa til embættisins þ. 20. ágúst n.
Lesa Meira


logoStefnuskráin
kver
Grundvallarstefnuskrá SAMSTÖÐU liggur fyrir, en hún skýrir megin áherslur flokksins í hinum ýmsu málaflokkum.
logoStjórnir
hopastarf
SAMSTAÐA fær ekki fjárframlag úr ríkissjóði eins og flestir aðrir flokkar og þarf að reiða sig á frjáls framlög.
logoStyrkir
logo
Kynntu þér hverjir sitja í framkvæmdaráði, stjórn flokksins, stjórnum aðildarfélaga hans og ungliðahreyfingarinnar