Samþykktir

SAMSTAÐA í Kraganum

Samþykkt á stofnfundi aðildarfélagsins þann 16. apríl 2012.

Grunngildi SAMSTÖÐU í Kraganum eru þau sömu og SAMSTÖÐU – flokks lýðræðis og velferðar.

1. gr.

Nafn deildarinnar er SAMSTAÐA í Kraganum. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr.

SAMSTAÐA í Kraganum er aðildarfélag sem vinnur að því að íslenskt samfélag byggi á grunngildum jafnaðar, samvinnu og sjálfbærni. Hlutverk þess er að efla starfsemi stjórnmálaflokksins í Kraganum og jafnframt að tryggja möguleika félagsmanna aðildarfélagsins til að móta stefnu flokksins.

3. gr.

Rétt til aðildar eiga þeir sem hafa gerst fullgildir félagar flokksins, hafa náð 16 ára aldri og eiga lögheimili í Suðvesturkjördæmi, þ.e. Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ, Álftanesi, Seltjarnarnesi Mosfellsbæ eða Kjósahreppi. Fullgildir félagar eru þeir sem hafa staðfest skráningu sína í SAMSTÖÐU með greiðslu félagsgjalds.

4. gr.

Stjórn aðildarfélagsins skal skipuð 5 fulltrúum og tveimur til vara. Skal hún kjörin á aðalfundi. Formaður er kosinn til tveggja ára. Þá eru kosnir tveir stjórnarmenn til tveggja ára, tveir til eins árs og tveir varmenn líka til eins ár. Í fyrstu kosningu til stjórnar skulu tveir efstu sitja í tvö ár en hinir í eitt.

Stjórn skiptir með sér verkum og kýs gjaldkera og ritara. Aðeins fullgildir félagar eru kjörgengir til stjórnar og kosningabærir á stofnfundi félagsins.

Stjórnarmenn skulu ekki sitja samfellt í stjórn lengur en 8 ár.

5. gr.

Ef stjórnarmaður segir sig úr stjórn eða gengur úr flokknum er næsti varamaður kallaður inn og stjórn skiptir aftur með sér verkum.

6. gr.

Stjórnin boðar til félagsfunda og skulu þeir boðaðir með tölvupósti eða öðrum sannanlegum hætti með minnst þriggja virka daga fyrirvara. Stjórn er skylt að boða til félagsfundar ef minnst 20 fullgildir félagsmenn senda um það skriflegt erindi til stjórnar og tilgreina ástæðu þess.

7. gr.

Aðalfund skal halda eigi síðar en 15. mars ár hvert og skal hann boðaður með viku fyrirvara. Boða má til aðalfundar rafrænt og óska eftir staðfestingu á móttöku. Fastir liðir aðalfundar skulu vera:

  • Skýrsla stjórnar.
  • Reikningar félagsins lagðir fram.
  • Skýrslur nefnda, sem starfa á vegum félagsins, kynntar.
  • Breytingar á samþykktum.
  • Kosning stjórnar.
  • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
  • Kosning í nefndir.
  • Önnur mál.

8. gr.

Rekstur SAMSTÖÐU í Kraganum skal vera fjárhagslega sjálfbær án sérstaks félagsgjalds.

9. gr.

Samþykktum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi enda sé rétt til hans boðað. Tillögum að breytingum skal getið í aðalfundarboði. Breytingartillögur þurfa að berast rafrænt þremur dögum fyrir aðalfund og verða birtar á heimasíðu SAMSTÖÐU áður en aðalfundur er settur.

10. gr.

Heimilt verður að breyta samþykktum þessum á félagsfundi verði það nauðsynlegt til að samræma þær samþykktum SAMSTÖÐU – flokks lýðræðis og velferðar.