Samstaða flokkur lýðræðis- og velferðar vill vernda náttúru
landsins gegn óásættanlegum, óafturkræfum náttúruspjöllum og berjast fyrir
vistvænni nýtingu auðlinda og umhverfisvænni framleiðslu- og
þjónustustarfsemi.
Samstaða flokkur lýðræðis- og velferðar er fjöldahreyfing
almennings sem tekur þátt í þróun samfélagsins með virkum lýðræðislegum
hætti og upplýstri rökræðu. Frumkvæði, áhugi og þekking einstaklinganna er
virkjuð til að skapa betri lausnir.
Samstaða flokkur lýðræðis- og velferðar sprettur úr íslensku
umhverfi og leggur áherslu á þann lærdóm sem draga má af stjórnmálasögu
landsins og sérkennum íslensks efnahagslífs og samfélags.
Samstaða flokkur lýðræðis- og velferðar telur rétt allra til
atvinnu vera mannréttindi. Hámarka þarf verðmætasköpun með sjálfbærri
nýtingu auðlinda þjóðarinnar, nýsköpun og tækniþróun innanlands.
Afhjúpandi þögn um umsókn Lilju
24 Aug 2014
Rakel Sigurgeirsdóttir birti eftirfarandi á bloggi sínu 19. ágúst sl:
Það er óhætt að segja að hún hafi komið á óvart tilkynning fjármála- og efnahagsráðherra um það hver verður skipaður í embætti seðlabankastjóra. Það er þó líklegra að einhverjir hafi verið búnir að reikna þessa niðurstöðu út úr biðtímanum. Yfirlýsing Más Guðmundssonar, sem heldur embættinu, í kjölfar tilkynningar Bjarna Benediktssonar hefur þó væntanlega komið flestum í opna skjöldu.
Þegar rýnt er í undangengið umsóknar- og skipunarferli er reyndar fleira sem hlýtur að koma mörgum á óvart.
17 Aug 2014
Þeir sem hafa fylgst með síðunni: Lilju Mósesdóttur sem næsta seðlabankastjóra hafa væntanlega tekið eftir því hvernig síðan hefur vaxið af bæði innleggjum og stuðningi. Það er þar af leiðandi eðlilegt að velta því fyrir sér hvað verður um hana nú þegar það hefur verið tilkynnt að Már Guðmundsson verður skipaður áfram í embættið.
Áður hefur komið fram að þeir sem standa að stuðningssíðunni eru fimm manna hópur sem síðar kom í ljós að eiga það sameiginlegt að vera félagsmenn í SAMSTÖÐU (sjá hér).
16 Aug 2014
Nú í morgun birti Lilja Mósesdóttir þakkir til stuðningsmanna og stofnanda síðunnar: Lilju Mósesdóttur sem næsta seðlabankastjóra. Þakkirnar setti hún fram í stöðuuppfærslu á Fésbókar í beinu framhaldi af því að nú hefur það verið gert opinbert að Már Guðmundsson verður endurskipaður í stöðu seðlabankastjóra n.k. miðvikudag.
Aðstandendur síðunnar brugðust við þessum fréttum í gærkvöldi þar sem þeir leggja það til að síðunni verði haldið úti áfram undir sama nafni en áskoruninni verði breytt.
10 Aug 2014
Einn aðstandanda síðunnar: Lilju Mósesdóttur sem næsta seðlabankastjóra setti sig í samband við undirritaða til að koma á framfæri göngum um kynjasamsetningu og aldurs- og búsetudreifingu velunnara stuðningssíðunnar. Auk þess sem viðkomandi þótti tilefni til að undirbúa fyrrum tengsla- og kynningarfulltrúa SAMSTÖÐU til að koma á framfæri mögulegum viðbrögðum við innihaldi tilkynningar fjármála- og efnahagsráðherra um það hvern umsækjendanna hann hefur í hyggju að skipa til embættisins þ. 20. ágúst n.